- Einn poki (375 gr) af Hälsans Kök Bitar á la Kyckling
- 1 dl ljós soya sósa
- 2 msk hunang
- ½ haus af kínakáli
- 100g spergilkál
- 6 stk minimaís
- 1 stk rauð paprika
- 1 hvítlauksgeiri
- ½ rauður chili
- Sesamolía til steikingar (má nota venjulega olíu)
Aðferð
Fínhakkið chili og hvítklauk og skerið annað grænmeti í strimla. Hitið olíu í wok pönnu eða annari steikarpönnu og setjið kjúklingabita og hrærið af og til. Setjið grænmeti í og steikið áfram í nokkrar mín. Lækkið hitan og hellið soyasósu og hunangi í. Gott er að saxa kóríander og setja í réttin og bera fram með núðlum eða hrísgrjónum.
Gott ráð: spergilkálið er gott að létt sjóða á undan áður en það er steikt. Einnig er hægt að nota það grænmeti sem til er í ísskápnum hverju sinni.